Leita í fréttum mbl.is
Embla

Ég mundi leyninúmerið....

Jæja, þá þarf að stofna nefnd til að sjá um þetta blessaða bekkjarmót, ef halda skal annað nú í sumar. Hverjir eru tilbúnir til að vera í nefnd?

Annars er ekkert nýtt af mér að frétta. Ég er ennþá í skóla á Bifröst, á fyrsta ári í viðskiptadeildinni. Er að vonast til að geta skroppið til útlanda í viku í sumar. Er einhver með?

 

En jæja, vonandi hafið þið það gott..

Kveðja Sveinbjörg

 


Um mig frá mér til mín :)

Það er nú ekki búin að vera mikil trafík á síðunni síðan bekkjarmótið var. Ákvað að flikka aðeins upp á hana og breyta. Endilega að halda henni við.  Á ekki bara að fara að skipuleggja næsta mót?? Til er ég!

En það er nú svosem ekkert nýtt af mér... Var frekar bambólétt á mótinu og átti stúlku þann 17 ágúst. Hún heitir Katla Ísold og er dásamleg InLove Annars er bara allt gott að frétta og ég skora á ykkur hin að skrifa eitthvað hérna inn, koma með hugmyndir um hvað hægt er að gera á næsta móti og bara hvað er að frétta og sonna...Vona að Sigga Dögg, Jón Helgi og fleiri komist núna sem að komust ekki í fyrra. kveð í bili

Katrín


Er síðan dauð ??

 Jæja hvað segiði, er þessi síða alveg dauð?

Væri gaman að halda henni uppi og fá fréttir af ykkur af og til.

Allt gott að frétta af mér og mínum, brjálað að gera í skólanum, þarf svo sem að venjast því bara, nóg af árum eftir Whistling

En elsku bekkjarfélagar sem komuð á bekkjarmótið, vil bara minna ykkur á að leggja inná mig fyrir bekkjarmótskostnaðinum, sem var nú reyndar ekki mikill, 650 kr. á mann en margt smátt gerir eitt stórt Smile Þeir sem eru búnir að borga eru: Lena, Hafþór, Ingunn og Svava. Endilega borga sem fyrst svo þetta lendi ekki allt á mér og Sveinbjörgu Wink Reikningur: 1105-05-11111, kt. 271181-3539

Og allir að blogga svo !!!

Kv

Hófý


Myndir

Jú sæl öll.

Takk kærlega fyrir síðast, ég skemmti mér mjög mjög vel Smile

Ég er búin að setja inn allar myndirnar sem ég tók, gaman væri ef allir sem tóku myndir gætu sett þær hér inn Grin

Kv Hófý


Takk fyrir síðast!!!!

Vildi bara segja takk fyrir skemmtilegan dag og frábært kvöld Smile Ég skemmtil mér ekkert smá vel og vildi að ég hefði meikað ballið líka ;) ég segi að við ættum að hittast aftur næsta sumar og þá getum við líka horft á videó og sonna... enívei, gaman að hitta ykkur öll... Heart

bæ þangað til næst...

Kveðja Katrín!

 


DAGURINN RUNNINN UPP!!!!!!!

Ég vona að allir séu spenntir fyrir deginum því ég er það allavega, ójá!!! Ég skemmti mér konunglega í gærkvöldi/nótt við að blása vínanda í blöðrur ásamt fleiri vínöndum!!! En ég segi bara góóóóóða skemmtun í dag, kvöld og nótt!!! Þetta verður fjör og gaman að hitta alla!!! Við vinnum svo fótboltann er það ekki???

Kveðja Bogga!


Síðasti séns

Jæja núna er síðasti séns á að biðja um óskalög fyrir völdið mikla. Er að fara í að klára diskinn í kvöld eða annaðkvöld.

Ég og Ingunn erum búin að finna 160 lög til að henda á disk til að hlusta á uppfrá. En bara það sem ég fann í tölvunni minni frá þessum tíma, þannig að það eru pottþétt alveg fullt af lögum sem að kanski einhver vill heyra sem ekki er þarna. Þannig að núna er tíminn til að tjá sig, ekki góður fyrirvari, ég veit. Biðst afsökunar á því.

En annars hlakka ég til að sjá ykkur öll hress og kát á laugardaginn.

Kveðja Rósa 


Dagskrá

Góða kvöldið, þá er fundi nr. 2 lokið, hann sátu: Tommi, Ingunn, Rósa, Sveinbjörg og Hófý.

Við settum niður dagskrá og hún er svohljóðandi:

Kl. 15 hittumst við í Þytshúsinu upp í Hvammi.

Kl. 16 ætlum við að taka þátt í fótboltakeppni sem verður upp í Hvammi á vegum Unglist.

Kl. 17 er okkur boðið í félagsmiðstöðina til að horfa á video með ´80 árganginum

Eftir það ætlum við að skola af okkur fótboltasvitann sem verður nú kannski orðinn storknaður...

Kl. 19 hittumst við aftur upp í Þytshúsinu, allir orðnir sætir og fínir og við gerum okkur klár í að grilla og tjilla Smile 

Kl. 23 er svo ball í Félagsheimilinu og þangað ætlum við að halda hress og kát.

Við ákváðum að það væri einfaldast að hver kemur með sinn mat og sína drykki.

Svo leggjum við bara í púkk fyrir húsnæðinu, smá nasli, bollu, kolum, pappadiskum, servíettum, blöðrum og dótarí. Það kemur bara í ljós í sömu viku hvað það verður mikið.

Hljómar þetta ekki bara vel? Einhverjar athugasemdir?

Wizard 

Kv Hófý


Fundur nr. 2

Hæ hæ. Nú er komið að fundi nr. 2, hann verður haldinn fimmtudagskvöldið 12. júlí kl. 22 á Café Sirop.

Þá skulum við reyna að negla niður endanlega dagskrá sem við getum svo birt hérna á síðunni.

Kv Hófý


vidoefni

Er einhver sem að á efni í video, það er að segja árshátíðir eða annað efni á video síðan við vorum í skóla. Mjög líklegt að ekki sé hægt að fá það lánað hjá skólanum þannig að við erum að reyna að safna saman sem hægt er til að búa til smá myndbrot fyrir okkur til að kíkja á bekkjamótinu. Þurfum bara að fá það lánað rétt aðeins til að taka afrit og svo skilum við því strax aftur.

Ef þið liggjið sem sagt á einhverju heima eða vitið um einhvern þá endilega látið okkur vita hér í commenti eða á netfang hrosam@simnet.is eða á Ingunnar netfang, sem ég man ekki í augnablikinu.

Ingunn og Rósa


Næsta síða »

Höfundur

Árgangur 1981
Árgangur 1981
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband